Morgunþátturinn "Ísland í bítið" á Stöð 2 hefur að undanförnu verið að skyggnast inn á Landspítala - háskólasjúkrahús til þess að fylgjast með þeirri fjölbreyttu starfsemi sem hér fer fram en er almenningi oft ekki sýnilegur. Um kl. 7:30 mánudagsmorguninn 15. desember 2003 getur fólk opnað fyrir morgunsjónvarpið á Stöð tvö og fylgst með kransæðavíkkun.
Sá merki áfangi náðist núna á dögunum að kransæðavíkkanir á spítalanum náðu tölunni 5000. Fyrsta kransæðavíkkunin var 1987, það ár voru þær aðeins 12. Þeim hefur fjölgað ár frá ári og nú eru horfur á að kransæðavíkkanir verði um 600 í ár.
Kransæðavíkkanir, hjartaþræðingar og æðarannsóknir ýmsar aðrar fara fram samtímis á tveimur stofum á Landspítala Hringbraut. Á annarri þeirra er hjartaþræðingartæki sem Jónína S. Gísladóttir gaf spítalanum af rausnarskap fyrir tveimur árum.