Leit
Loka

Sjúklingaráðin 10 

Öryggi sjúklinga er okkur mikilvægt á Landspítala. Í því felst að sjúklingar og aðstandendur þeirra fái örugga þjónustu, í öruggu umhverfi, veitta af heilbrigðisstarfsfólki sem leggur sig fram um að nota nýjustu þekkingu innan heilbrigðisvísinda.

Sem sjúklingur getur þú aukið öryggi þitt og þeirrar þjónustu sem þér er veitt á spítalanum með því að vera virkur og upplýstur af meðferðarteymi þínu. 

Upplýsingar um heilbrigði, sjúkdóma og meðferð geta verið flóknar og þér framandi. Til að skilja betur hvað er að gerast með heilsu þína er mikilvægt að þú spyrjir heilbrigðisstarfsfólk um greiningu og meðferð og til hvers sé ætlast af þér í því sambandi. 

Sjá fræðsluritið Örugg dvöl á sjúkrahúsi >

Til að vera virkur í meðferðarsambandi við lækninn, hjúkrunarfræðinginn eða annan heilbrigðisstarfsmanns þá er mikilvægt að þú...

  • Veitir heilbrigðisstarfsfólki réttar upplýsingar um heilsu þína og meðferð, t.d. varðandi þau lyf sem þú ert að taka inn
  • Spyrjir og sért viss um að þú hafir réttan skilning á ástandi þínu. Mikilvægt er að spyrja ef þú ert í vafa um að hafa réttan skilning á greiningu eða meðferð sem þér er veitt. Sem dæmi má nefna undirbúning fyrir rannsóknir, rétta inntöku lyfja eða áætlun um framtíðarmeðferð.
  • Þekkir lyfin þín. Mikilvægt er að sjúklingar fylgi leiðbeiningum varðandi lyfjatöku. Röng lyfjameðferð getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsuna.

Samvinna sjúklings og aðstandenda hans annars vegar og heilbrigðisstarfsmanns hins vegar byggist á því að hvorir tveggju hafi sömu upplýsingar til að byggja ákvarðanir sínar á. Því meira sem þú veist um heilsu þína, því virkari verðurðu í meðferðinni.

Því hvetur heilbrigðisstarfsfólk á Landspítala sjúklinga og aðstandendur að fara yfir sjúklingaráðin tíu og nýta þau ráð sem þar eru gefin í samskiptum sínum við heilbrigðisstarfsfólk spítalans.

Gangi þér og fjölskyldu þinni vel!

Sjúklingaráðin tíu 

Dziesięć porad dla pacjentów

Tey tíggju sjúklingaráðini

Sjúklingaráðin 10

  • Spurðu ef eitthvað er óljóst eða veldur þér áhyggjum
  • Spurðu aftur ef þú skilur ekki
  • Láttu vita um ofnæmi fyrir lyfjum, mat eða öðru, um lyfin sem þú tekur, vítamín, náttúrulyf, sérstakt mataræði eða ef þú ert barnshafandi
  • Heilbrigðisstarfsfólk þarf nákvæmar upplýsingar sem getur þurft að ítreka til öryggis
  •  Segðu frá óvenjulegri líðan og einkennum þótt tengsl við veikindin virðist óljós
  •  Vertu viss um að nafn þitt og kennitala sé rétt hjá starfsfólki áður en kemur að rannsókn, meðferð eða lyfjagjöf
  • Ræddu við heilbrigðisstarfsfólkið um meðferð og rannsóknir til þess að skilja sem best tilgang þeirra
  • Gott er að hafa einhvern nákominn með í viðtölum því það getur dregið úr hættu á misskilningi og gagnast við að rifja upp hvað kom fram í þeim
  • Heilbrigðisstarfsfólki er skylt að virða trúnað en má gefa þeim sem þú eða forráðamaður þinn tilgreinir upplýsingar um líðan þína eða meðferð
  • Fáðu að vita um framhald meðferðar fyrir útskrift eða í lok göngudeildarheimsóknar, hvar hún sé veitt, af hverjum og hvað þú þurfir að gera vegna hennar
Mikilvægt er að vita hvernig lyfin virka, hversu lengi á að taka þau, um breytingar á lyfjainntöku og áhrif af mat og drykk. Farðu yfir lyfjakortið með útskriftarlækninum

Skráðu reynslu þína í dagbók, líðan og helstu atriði um meðferðina. Undirbúðu þig fyrir viðtöl og skrifaðu niður spurningar sem þú vilt fá svarað

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?