Leit
Loka

Lyfjanefnd Landspítala

Vinnur að öruggri og skynsamlegri notkun lyfja á Landspítala og öðrum opinberum heilbrigðisstofnunum. Markmiðið er að tryggja öryggi við umsýslu lyfja og að saman fari fagleg og fjárhagsleg ábyrgð við val á lyfjum og notkun þeirra. 

Ákveður notkun lyfja á opinberum heilbrigðisstofnunum, þ.m.t. leyfisskyldra lyfja, og metur hvort og með hvaða hætti lyf gagnast sjúklingum. Lyfjanefndin útbýr leiðbeiningar og forgangslista lyfja með tilliti til fjárheimilda vegna innleiðingar lyfja og notkunar þeirra í heilbrigðisþjónustu. Hún útbýr líka og hefur umsjón með lyfjalista fyrir opinberar heilbrigðisstofnanir.

Ritari: Dóra Guðrún Pálsdóttir
Formaður: Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir

Tölvupóstfang: lyfjanefnd@landspitali.is

Lyfjanefnd_Landspitala.jpg (1742730 bytes)

Upplýsingar  

Lyfjanefnd Landspítala starfar í samræmi við 44. gr. laga nr. 100/2020 og 3.gr. reglugerðar nr. 1450/2020. Um lyfjanefnd Landspítala í lögum nr. 100/2020:

Á Landspítala skal starfa lyfjanefnd sem vinnur að öruggri og skynsamlegri notkun lyfja á Landspítala og öðrum opinberum heilbrigðisstofnunum, sbr. þó 45. gr., með það að markmiði að tryggja öryggi við umsýslu lyfja og að saman fari fagleg og fjárhagsleg ábyrgð við val á lyfjum og notkun þeirra.

Ráðherra skipar lyfjanefnd Landspítala til fimm ára í senn. Þess skal gætt að innan nefndarinnar séu aðilar sem búa yfir víðtækri þekkingu á klínískri læknisfræði, klínískri lyfjafræði, hjúkrun, siðfræði og fjármálum heilbrigðismála. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ráðherra setur nefndinni starfsreglur sem skulu birtar á vef Landspítala.

Lyfjanefnd Landspítala skal m.a. taka ákvörðun um notkun lyfja á opinberum heilbrigðisstofnunum, þ.m.t. leyfisskyldra lyfja, meta hvort og með hvaða hætti lyf gagnast sjúklingum, útbúa leiðbeiningar og forgangslista lyfja með tilliti til fjárheimilda vegna innleiðingar lyfja og notkunar þeirra í heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er hlutverk nefndarinnar að útbúa og hafa umsjón með lyfjalista fyrir opinberar heilbrigðisstofnanir.

Lyfjanefnd Landspítala skal veita Lyfjastofnun umsögn áður en stofnunin tekur ákvörðun um að flokka lyf sem leyfisskylt lyf. Nefndin skal jafnframt veita umsögn um greiðsluþátttöku í leyfisskyldum lyfjum, sbr. 66. gr. Umsagnir skulu vera skriflegar og rökstuddar. Með umsögnum til Lyfjastofnunar skulu fylgja öll nauðsynleg gögn. Lyfjanefnd Landspítala skal taka ákvarðanir um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku vegna þeirra lyfja sem spítalinn greiðir, m.a. vegna lyfja sem falla undir 4. tölul. 2. mgr. 66. gr. Umsóknir um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku skal senda til lyfjanefndar Landspítala.

Fulltrúar lyfjanefndar mega ekki eiga sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta í þróun, framleiðslu, markaðssetningu, innflutningi, miðlun, heildsölu eða smásölu lyfja.

Lyfjanefnd Landspítala skal starfa í samvinnu við lyfjanefnd Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, sbr. 45. gr., og erlenda samstarfsaðila. Einnig getur nefndin haft samráð við aðrar heilbrigðisstéttir og einstök sjúklingasamtök eftir því sem þurfa þykir.

Ákvarðanir lyfjanefndar Landspítala eru endanlegar á stjórnsýslustigi og sæta ekki kæru til ráðherra.

Reglugerð um skipan, hlutverk og starfsemi lyfjanefndar Landspítala og lyfjanefndar Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.

Engar skráðar leyfisreglur ennþá
Heilbrigðisráðherra skipaði í lyfjanefnd Landspítala 1. febrúar 2021. 
 
Aðalmenn
  • Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir, formaður
  • Gerður María Gröndal, yfirlæknir, varaformaður
  • Gerður Beta Jóhannsdóttir, deildarstjóri gigtarþjónustu
  • Ragnar Grímur Bjarnason, yfirlæknir
  • Pétur S. Gunnarsson, klínískur lyfjafræðingur
  • Arnþrúður Jónsdóttir, lyfjafræðingur, MBA
  • Örvar Gunnarsson, lyf- og krabbameinslæknir

Varamenn

  • Signý Vala Sveinsdóttir lyf- og blóðmeinalæknir, PhD
  • Sif Sumarliðadóttir hjúkrunarfræðingur, heilsuhagfræðingur
  • Guðrún I. Gylfadóttir lyfjafræðingur
  • Gylfi Óskarsson barna- og hjartalæknir, PhD
  • Anna María Þórðardóttir sérfræðingur í hjúkrun
  • Eva Ágústsdóttir, verkefnastjóri

Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra frá 1. febrúar 2021 til næstu fimm ára. sjá nánar um nefndina hér: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/nanar-um-nefnd/?itemid=cd461b3a-6a09-11eb-812f-005056bc8c60



  • Eva Ágústsdóttir lyfjafræðingur, MPA í opinberri stjórnsýslu
  • Rannveig Einarsdóttir klínískur lyfjafræðingur
  • Dóra Guðrún Pálsdóttir ritari lyfjanefndar
  • Karen Lekve lyfjafræðingur

Starfshópur um leyfisskyld lyf (L-lyfjahópur)

  • Helga Eyjólfsdóttir lyf- og öldrunarlæknir
  • Gerður Gröndal lyf- og gigtarlæknir
  • Guðrún I. Gylfadóttir lyfjafræðingur
  • Rannveig Einarsdóttir lyfjafræðingur
  • Eva Ágústsdóttir lyfjafræðingur
  • Agnes Smáradóttir lyf- og krabbameinslæknir
  • Signý Vala Sveinsdóttir lyf- og blóðlæknir
  • Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir lyf- og hjartalæknir
  • Sif Ormarsdóttir lyf- og meltingarlæknir
  • Guðríður Kristín Þórðardóttir sérfræðingur í hjúkrun
  • Örvar Gunnarsson lyf- og krabbameinslæknir
  • Sif Sumarliðadóttir heilsuhagfræðingur
  • María Gunnbjörnsdóttir lyf- og ofnæmislæknir

Starfshópur um lyfjalista og hagræðingu

  • Rannveig Einarsdóttir klínískur lyfjafræðingur
  • Þórunn Óskarsdóttir klínískur lyfjafræðingur
  • Karen Lekve lyfjafræðingur
  • Sif Ormarsdóttir lyf- og meltingarlæknir
  • Adeline Tracz verkefnisstjóri
  • Tinna Rán Ægisdóttir lyfjafræðingur
  • Þóra Jónsdóttir lyfjafræðingur

Fundargerðir

Lyfjanefnd Landspítala - fundargerðir frá janúar 2022 

Áætlun um haustið 2023

Lyfjanefnd og L-lyfjahópur halda fundi sömu daga

1)   16. ágúst
2)   30. ágúst
3)   13. september
4)   27. september
5)   11. október
6)   25. október
7)    8. nóvember
8)   22. nóvember
9)    6. desember
10) 20. desember
11)  3. janúar

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?