Leit
Loka
 

Fjarfundagátt

Landspítali er með sérstaka fjarfundagátt sem hýst er hjá spítalanum (ekki í skýjalausn).
Fjarfundagáttina geta starfsmenn notað til að hafa örugg samskipti sín á milli eða við aðra fyrir utan spítalann.
Til að hámarka gæði tengingar er mælt með að notendur séu tengdir með netkapli frekar en á þráðlausu neti, þó að það gangi vel í flestum tilfellum. Á álagstímum geta notendur fundið fyrir truflun eða tapi á myndgæðum.

Ytri aðilar þurfa í flestu tilfellum að opna með vafra tengil sem þeir fá sendan í tölvupósti eða með SMS. Mælst er til þess að notendur opni tengla með Google Chrome eða Safari vafranum.  Best er að stilla tölvur og snjalltæki áður þannig að þau opni fjarfundatengilinn sjálfvirkt með þessum vöfrum. Hér að neðan má sjá hvernig þetta er stillt á tækjum.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?