Bráðadagurinn
Árlega er haldin ráðstefna á vegum bráðaþjónustu Landspítala þar sem kynntar eru rannsóknir og verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við bráðaþjónustu á Íslandi. Hefð hefur skapast fyrir því að fá sérfræðinga til að kynna störf sín og rannsóknir tengd þema dagsins.

- Á Bráðadeginum 3. mars 2023 er þemað „Starfsfólk bráðaþjónustu” með áherslu á starfsánægju og vellíðan og hvernig þessir þættir hafa áhrif á þróun þjónustunnar.
- Bráðadagurinn er ekki aðeins uppskeruhátíð rannsókna- og starfsþróunarverkefna bráðaþjónustu heldur líka mikilvægur liður í símenntun starfsfólks.
- Ráðstefnan er þverfagleg og hana sækir fagfólk í þjónustu bráðveikra einstaklinga hvaðanæva að úr samfélaginu.
Hagnýtar upplýsingar
Yfirskrift ráðstefnu: „Starfsfólk bráðaþjónustu“
Áhersla verður á starfsánægju og vellíðan og hvernig þessir þættir hafa áhrif á þróun þjónustunnar.
Dag- og tímasetning: Föstudaginn 3. mars 2023 frá kl. 09:00 til 15:00
Verð: 14.000 (frítt fyrir starfsfólk bráðamóttöku)
Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica
Dagskrá; bradadagurinn_2023_dagskra.pdf
ATH. Skráningu er lokið 2. mars 2023
Skilafrestur ágripa rann út 30. janúar 2023
Nánari upplýsingar veita:
- Anna Helga Ragnarsdóttir fyrir hönd félags bráðahjúkrunar
- Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, settur deildarstjóri bráðamóttöku.
- Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri sími 861 6269
- Guðrún Katrín Oddsdóttir fyrir hönd Félags bráðalækna
- Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir/lektor í bráðalækningum sími 824 5408
- Sigrún Guðný Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun.
Óskað er eftir ágripum fyrir veggspjaldakynningar, málstofur eða erindi sem fjalla um rannsóknir og gæðaverkefni.
- Ágrip geta fjallað um bráðaþjónustu innan sem utan sjúkrahúsa, mismunandi hópa og þjónustu við sjúklinga, starfsfólkið og starfsumhverfið.
- Ágrip verða ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.
Leiðbeiningar um uppsetningu og innsendingu ágripa
Ágrip skulu send með tölvupósti á bradadagurinn@landspitali.is
- Titill, nöfn höfunda, vinnustaðir og netfang tengiliðar.
- Hámarksorðafjöldi 350, sett upp og send inn í Word skjali
- Framsetning, með feitletruðum undirfyrirsögnum: Bakgrunnur, Markmið, Aðferð, Niðurstöður og Ályktanir
- Texta skal rita í TimesNewRoman 12pt letri, 1 línubil
Höfundur tilgreini ósk um birtingu ágrips sem erindi eða veggspjald. Undirbúningsnefnd áskilur sér rétt til ritrýningar og ákvörðunar um birtingu ágrips og form þess, þ.e. sem veggspjald eða erindi.
Dæmi um hvernig senda á inn ágrip og dæmi um uppsetningu ágripa á myndaformi: ATH! smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
![]()
Dæmi um innsent ágrip Leiðbeiningar við uppsetningu ágrips
Nánari upplýsingar veita:
Anna Helga Ragnarsdóttir fyrir hönd félags bráðahjúkrunar
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir
Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri sími 861 6269
Guðrún Katrín Oddsdóttir fyrir hönd Félags bráðalækna
Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir/lektor í bráðalækningum sími 824 5408
Sigrún Guðný Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur
Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun.
- Anna Helga Ragnarsdóttir fyrir hönd félags bráðahjúkrunar
- Ágústa Hjördís Kristinsdóttir
- Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri sími 861 6269
- Guðrún Katrín Oddsdóttir fyrir hönd Félags bráðalækna
- Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir/lektor í bráðalækningum sími 824 5408
- Sigrún Guðný Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun.
- Læknablaðið fylgirit 105 - Samvinna og samskipti í bráðaþjónustu 2021
- Læknablaðið fylgirit 103 - Í upphafi skyldi endinn skoða
- Læknablaðið fylgirit 100 - Flæði bráðveikra: sjúklingar, starfsfólk og starfsumhverfi
- Læknablaðið fylgirit 95 - Fjölbreytileiki í bráðaþjónustu 2018
- Læknablaðið fylgirit 92 - Nýsköpun í bráðaþjónustu 2017
- Læknablaðið fylgirit 86 - Nýsköpun í bráðaþjónustu 2016
- Læknablaðið fylgirit 83 - Börn og aldraðir 2015
- Læknablaðið fylgirit 77 - Þegar á reynir 2014
- Læknablaðið fylgirit 74 - Forvarnir 2013
Dagskrá
- 4. mars 2022 - Bráðaþjónusta fyrir þig alls staðar
- 5. mars 2021 - Samvinna og samskipti í bráðaþjónustu
- 6. mars 2020 - Í upphafi skal endinn skoða
- 1. mars 2019 - Flæði bráðveikra
- 2. mars 2018 - Fjölbreytileiki í bráðaþjónustu
- 3. mars 2017 - Nýsköpun í bráðaþjónustu
- 4. mars 2016 - Bráðveikir á nýjum spítala
- 6. mars 2015 - Börn og aldraðir
- 7. mars 2014 - Þegar á reynir
- 1. mars 2013 - Forvarnir
- 2. mars 2012 - Gæði og öryggi
- 4. mars 2011 - Við fyrir þig
- 5. mars 2010 - Fremst meðal jafningja
- 6. mars 2009 - Raunveruleikinn og rannsóknir