Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

Mjög mikilvægt er að sjúklingur komi með öll þau lyf sem hann tekur og afhendi þau til varðveislu og endurmats á áframhaldandi lyfjagjöf. 
Þetta á ekki síst við um augndropa, insúlínpenna, púst, getnaðarvarnalyf, tíðahvarfahormón eða lyfseðilsskyld krem sem sjúklingar nota heima. 
Einnig sjaldgæf eða sérhæfð lyf (t.d. svo kölluð S-merkt lyf) sem notuð eru að staðaldri.

Læknar sjúklingsins á Landspítala ákveða hvaða lyf hann þarf meðan legið er inni og hjúkrunarfræðingar sjá um að gefa þau.

Til að tryggja örugga meðferð er mikilvægt að sjúklingar taki lyf samkvæmt fyrirmælum, einnig eftir að heim er komið. 

Ef fylgikvilla verður vart eftir útskrift þarf að hafa samband við legudeildina eða heimilislækni.

Á Landspítala Hringbraut er hefðbundið apótek og þar eru afgreiddir lyfseðlar sem eru sérmerktir Landspítala og skrifaðir eða sendir rafrænt af læknum sjúkrahússins. 

Þessi þjónusta er ætluð göngudeildarsjúklingum og sjúklingum sem eru að útskrifast.

  • Apótekið er staðsett við göngudeild 10D á Hringbraut.
  • Opið frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga. 
  • Hægt er að hafa samband við apótek í síma 543-8234 eða í gegnum lyfsedlar@landspitali.is til að panta lyf

Bent er á að apótek bjóða upp á lyfjaskömmtun þar sem lyf sjúklings eru sett í merktar umbúðir fyrir hverja lyfjatöku. 

Lyfjaskömmtun eykur öryggi í lyfjameðferð og til lengri tíma litið er lyfjaskömmtun fjárhagslega hagkvæm fyrir sjúklinginn.

Læknir þarf að merkja við á lyfseðli „Afgreiðist í skammtaöskju” sem er neðarlega á hægri hlið lyfseðilsins. Með því samþykkir læknirinn lyfjaskömmtun.

Mikilvægt er að taka ávallt ávísuð lyf og á réttan hátt. Ef sjúklingar hafa athugasemdir þar að lútandi, skal snúa sér fyrst til þess læknis sem ávísaði lyfinu eða til heimilislæknis.

Við útskrift af sjúkrahúsinu eða í viðtali á göngudeild eru lyfseðlar sendir rafrænt í svonefnda lyfjagátt. 

Lyfseðlana er unnt að leysa út í öllum apótekum, allt eftir því hvað hentar best. 

Ef nauðsyn reynist að endurnýja lyfseðla síðar er það að öllu jöfnu hlutverk viðkomandi heilsugæslustöðvar eða læknastofu að sjá um slíkt. 

Undantekningar á því eru ef lyfin eru sérmerkt undanþágulyf sem eingöngu tilteknir sérfræðilæknar geta skrifað út.

Þá þarf að hafa samband við ritara viðkomandi sérgreinar - t.d. ritara taugalækna til að fá endurnýjað sérmerkt taugalyf.

Langflestar heilsugæslustöðvar eru með skýrt verklag um endurnýjun lyfseðla sem unnt er að nálgast á vefsíðum þeirra eða með því að hringja þangað.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?