Sérnámsgrunnslæknar
Sérnámsgrunnsár á Landspítala er tími reynslu og náms fyrir nýútskrifaða lækna

Hagnýtar upplýsingar
Til Landspítalans leitar fólk með mismunandi vandamál, svo sem algenga minni háttar áverka, flókna fjöláverka, margbreytilega lyflæknisfræðilega sjúkdóma og sérhæfð vandamál. Starfsþjálfun ykkar er okkur mikilvæg og viljum við á Landspítala leggja okkur fram um að þið vaxið og dafnið sem sérnámsgrunnslæknar. Námstækifærin eru mörg og hvetjum við ykkur til að nýta þau til að bæta ykkar færni, kunnáttu og faglega framkomu.
Spítalinn býr yfir besta tæknibúnaði sem til er á landinu og umfangsmikilli þekkingu og reynslu starfsmanna. Þar starfa sérfræðingar á öllum helstu sviðum læknisfræðinnar og flestir kennarar við læknadeild Háskóla Íslands. Við á Landspítala leggjum okkur fram um að taka vel á móti ykkur, höfum breiðan hóp vel þjálfaðra handleiðara og sterkan hóp sem vinnur að ykkar námsþjálfun.
Sérnámsgrunnsár (áður kandídatsár) á Landspítala er tími reynslu og náms fyrir nýútskrifaða lækna. Sérnámsgrunnslæknar öðlast þar hæfni í því að beita þekkingu sinni úr grunnnámi, fræðast betur um klíníska læknisfræði og fá reynslu sem nýtist til sjálfstæðra vinnubragða í frekara sérnámi og starfi sem læknar.
Við óskum ykkur góðs gengis.
Inga Sif Ólafsdóttir, yfirlæknir
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri
Staðsetning: Menntadeild, Skaftahlíð 24, Landspítala
Netfang: sigruni@landspitali.is, sími: 543 1475, 825 3682
- Upphafsgátlisti fyrir sérnámsgrunn
- Lokagátlisti – Skilyrði fyrir viðurkenningu á sérnámsgrunni
- Almennt lækningaleyfi – umsókn
- Marklýsing
- Öryggi við lyfjaávísanir og endurskoðun lyfjalista
- Fræðsla fyrir sérnámsgrunnslækna - skylda að kynna sér
- Grunnbólusetningar
- Tímabundið lækningaleyfi - upplýsingar
- Velkomin í liðið - bæklingur
- Þagnarskylda starfsmanna
- Notkun sjúkraskrárupplýsinga
- Aðgangur að sjúkraskrám
- Samningur um lán á farsímum
- Félag almennra lækna
- ePortfolio - Skil á gögnum o.fl. skv. gátlista fyrir lok árs
- Fræðsludagskrá fyrir sérnámsgrunnslækna, haustönn 2021
- Gildi ígrundana fyrir lækna
- Gildi PDP fyrir lækna
- Leiðbeiningar um sjúkraskrárgerð
- Námsdagar – minnisblað
- Hvernig má sækja um námsdaga, ferðakostnað og námskeiðsgjöld
- Orlof, staðarvaktafrí, leyfi, fjarvistir
- Sjálfsþjónusta Vinnustundar
- Smástund
- Skurðlækningasvið - við upphaf starfs
- Viðtöl við sérnámsgrunnslækna
- Teymisvinna í bráðum aðstæðum
ePortfolio og handleiðarar
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara sérnámsgrunnslækna
- Leiðbeiningar um handleiðslu fyrir sérnámsgrunnslækna
- Samantekt um matsblöð notuð á sérnámsgrunnsárinu
- Leiðbeiningar fyrir sérnámsgrunnslækna um staðfestingu á hæfnikröfum
- Leiðbeiningar fyrir sérnámsgrunnslækna um að hvernig linka á matsblöð við marklýsingu
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara um staðfestingu á hæfnikröfum
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara um útfyllingu matsblaða
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara um að samþykkja „Self entered“ matsblöð
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara um skimun í ePortfolio-kerfinu
- Leiðbeiningar fyrir handleiðara um Summary TAB report
- Leiðbeinendur (handleiðarar) fyrir sérnámsgrunnslækna 2021 – 2022
- Leiðbeinendur (handleiðarar) fyrir sérnámsgrunnslækna 2020 – 2021
- Leiðbeinendur (handleiðarar) fyrir sérnámsgrunnslækna 2019- 2020
- Leiðbeinendur (handleiðarar) fyrir sérnámsgrunnslækna 2018- 2019
Vefkannanir

Umsóknir um stöður í sérnámsgrunni á Íslandi
Stöður í sérnámsgrunni á Íslandi eru auglýstar í september. Venjulega eru umsóknir miðaðar við 12 mánaða starf frá og með miðjum júní eða síðar. Utan hefðbundins umsóknartíma er möguleiki á að óska eftir síðbúinni afgreiðslu með því að senda fyrirspurnir á netfangið: sigruni@landspitali.is, gjarnan með fylgiskjali (veljið að vista skjalið) og öðrum umsóknargögnum (sjá lið 7 í fylgiskjalinu).
Umsagnarbréf – Leiðbeiningar vegna umsókna um sérnámsgrunn:
- Á íslensku (doc)
- Á ensku (doc)
- Á dönsku (doc)
ATH þetta er word skjöl til að fylla út, en svo þarf að vista þau í tölvunni áður en þau eru send.
Móttökudagar
Dagskrá móttökudaganna er hugsuð sérstaklega með þarfir sérnámsgrunnslækna í huga og miðast bæði við starf á sjúkrahúsi og heilsugæslustöð. Það er skylda að taka þessa daga áður en starf hefst á deildum og stöðvum. Sjá yfirlit hér fyrir neðan yfir næstu móttökudaga. Starf á deildum hefst venjulega fyrsta virka daginn að loknum móttökudögum eða á skilum síðar í blokkinni. Mögulegar upphafsdagsetningar koma fram í fylgiskjalinu sem senda skal með umsókninni.
Næstu móttökudagar og mögulegur tími til að hefja sérnámsgrunn:
Dagsetningar |
Möguleg tímasetning fyrir upphaf starfs að undangengnum móttökudögum |
3. – 10. júní 2022 |
Júní og ágúst eða síðar. |
4. – 7. október 2022 |
Október, desember, febrúar eða apríl. |
4. – 7. október 2022 |
Júní, ágúst eða síðar. |
2. – 6. október 2023 |
Október, desember, febrúar eða apríl |
3. – 7. júní 2024 |
Júní, ágúst eða síðar. |
30. sept - 4. október 2024 |
Október, desember, febrúar eða apríl |
Applicants who do not have Icelandic as first language
All applicants are welcome to apply for „sérnámsgrunn“ which is a rotating internship year (foundation year) in Iceland. The applicant has to have a medical degree before starting „sérnámsgrunn“ , from a Medical University which is internationally recognized and provide a Certificate of Confirmity (Letter of Confirmity) for their Medical University, according to requirements from the Icelandic Health Authorities (Embætti Landlæknis). Applicants who are graduates from universities outside of EU/EES countries will be evaluated by Embætti landlæknis and can expect to be asked to undergo medical exams from the University of Iceland.
For the application to be processed, those who do not have Icelandic as native language need to provide a certificate of B2 proficiency in Icelandic according to the common European Framework of Reference for Languages from a certified language school. Applicants need to be able to discuss matters of health related issues with patients, colleges and other members of staff in Icelandic. Furthermore applicants need to be able to function with in the Icelandic health system.