Leit
Loka

Innkaupadeild

Innkaup og vörustýring spítalans er með þeim hætti að öryggi sjúklinga sé ávallt tryggt á hagkvæmasta mögulega máta.

Útboð og verðfyrispurnirSenda inn upplýsingar

Banner mynd fyrir  Innkaupadeild

Hér erum við

Skaftahlid_sudur.png (1330987 bytes)

Innkaupadeild: Skaftahlíð 24, 1h.  Suðurhús. Sími: 543 1000

Hagnýtar upplýsingar

 

Sýna allt
  • Að farið sé eftir lögum um opinber innkaup og unnið sé í samræmi við innkaupastefnu ríkisins
  • Að innkaupin séu í samræmi við stefnu ríkisins um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur
  • Að starfsmenn fylgi innkaupastefnu og innkaupareglum Landspítala 
  • Stjórnun vöruflæðis frá pöntun til vörunotkunar

Deildarstjóri: Kristján Þór Valdimarsson,  kvald@landspitali.is s. 543 1516

 

Deildin skiptist í þrjú verkefnasöfn:

Innkaup - Vörur - Tæki - Þjónusta / Innkaup - Lyf / Stoðþjónusta 

 

Dagleg starfsemi hvers verkefnasafns er undir umsjón verkefnastjóra.

 

Innkaup - Vörur - Tæki - Þjónusta

 

Innkaup - Lyf

 

Stoðþjónusta

  • Baldvin Hafsteinsson lögfræðingur

Hægt er að skrá sig á póstlista innkaupadeildar fyrir verðfyrirspurnir um hjúkrunarvörur, rekstrarvörur og lækningartæki með því að senda póst á verdfyrirspurnir@landspitali.is. Þetta á ekki við um verðfyrirspurnir fyrir lyf.


Efnislínu (subject) skal merkja sem „Póstlisti“.

Ef óskað er eftir því að skrá sig af póstlista skal einnig senda póst á verdfyrirspurnir@landspitali.is með „Póstlisti“ í efnislínu.


Ekki eru sendar út tilkynningar fyrir hverja nýja verðfyrirspurn eða breytingar. Því er það á ábyrgð birgja að fylgjast með vefsvæðinu.

Fréttir

Útboðsupplýsingar

Í auglýsingu

6.6.2023
Verðfyrirspurn 6/2023 -Alkóhólgrisjur
Samið var við Inter ehf.

 

12.4.2023
Verðfyrirspurn 25/2022 -Loftdýnur án mótors
Samið var við Fastus ehf.

 

12.4.2023
Verðfyrirspurn 24/2022 -Svampdýnur
Samið var við Fastus ehf.

 

Síðast uppfært  2.1.2024

Athuga skal að hér er um að ræða áætlun og því er yfirlitið ekki tæmandi og getur tekið breytingum.

 

Áætluð útboð 2024

Heiti útboðs

 Áætlaður auglýsingartími

Sprautur, nálar, kranar, æðaleggir, blóðgassprautur og fylgihlutir

 1. ársfj. 2024

 Lokað blóðtökukerfi  1. ársfj. 2024
 Blóðskilunarvélar og rekstrarvara  1. ársfj. 2024
 Rafbrennslupennar og elektróður  1. ársfj. 2024
Næring um slöngu og næringardrykkir  1. ársfj. 2024

Brjóstaígræði og vefþenslupúðar

 1. ársfj. 2024



  Áætlaðar verðfyrirspurnir 2023-2024

Heiti verðfyrirspurna

  Áætlaður auglýsingartími

Enfit sondusprautur og tappar

 1. ársfj. 2024

Þrýstingssáravarnarbúnaður

 1. ársfj. 2024

Verkfæratínur og fylgihlutir
 1. ársfj. 2024

  

Áætluð opinber innkaup á lyfjum 2024

Heiti útboðs

ATC flokkar/lyf/ábendingar

Áætlaður auglýsingartími

Verðfyrirspurnir

Ýmis óskráð lyf

1-4 ársfjórðungur 2024
Útboð

 

Ýmis lyf; m.a. ATC flokkar, 

A02BC05, B01AC21, B01AC27, B02BB01, B02BD01, B03AC, B06AC01, B06AC02, B06AC05, C02KX01, C02KX02, C02KX04, C02KX05, N01AH06, N03AX18, V03AB35

1-2 ársfjórðungur 2024
Útboð

 

Ýmis lyf; Ýmis æxlishemjandi biosimilar lyf ; 

L01EA01, L01FA01, L01FD01, L01FG01

1-2 ársfjórðungur 2024
Útboð

 

Ýmis lyf; Tnf alfa hemlar og skyld lyf og lyf við astma og ofnæmi

1-2 ársfjórðungur 2024
Útboð
Ýmis lyf; Ýmis æxlishemjandi lyf (eldri lyf) og HIV lyf  1-2 ársfjórðungur 2024


Innkaupadeild LSH er með ákveðnar vörur í skoðun og býður því birgjum og áhugasömum bjóðendum að senda inn upplýsingar um þær vörur sem eru meðal annars í skoðun á netfangið verdfyrirspurnir@landspitali.is.

Almennt

Verðfyrirspurnir á vegum Landspítala eru listuð upp sérstaklega og á svæðinu má nálgast þau gögn er verðfyrirspurnina varða ásamt mikilvægum dagsetningum. Niðurstöður verðfyrirspurna ásamt fyrirspurnum og svörum munu einnig vera á svæðinu.

Útboð Landspítala eru birt á vefsvæði Ríkiskaupa og hægt er að nálgast þau þar.

Innkaupadeild Landspítala fylgir umhverfisstefnu spítalans og í innkaupum á vörum og þjónustu er:

  • Keyptar vörur og þjónusta sem hafa sem minnst umhverfisáhrif og lægstan líftímakostnað
  • Minnkuð sóun á magnvörum, m.a. einnota vörum
  • Umhverfisáhrifum haldið í lágmarki vegna notkunar á varasömum efnum, lyfjum og lyfjagösum
  • Dregið úr myndun úrgangs og endurvinnsla og endurnýting aukin

Það er því mikilvægt að í samvinnu við birgja sé unnið skipulega að því að draga úr umbúðum. Auknar kröfur verða gerðar í útboðum og verðfyrirspurnum, til vara og umbúða, s.s. að ekki séu óþarfa hættuleg efni í vörum, vörur séu án PVC og að auðvelt sé að endurvinna umbúðir og vörur að notkun lokinni.

Vörukaup: 18.519.000 kr. án vsk

Þjónusta:   18.519.000 kr. án vsk

Verkframkvæmdir: 58.543.000 kr. án vsk

Rammasamningar um hjúkrunar- og lækningavörur

Sýna allt

Samningar um sauma og hefti tóku gildi 11.október 2021 og gilda til 11. október 2022 með möguleika að framlengja þeim x3 um eitt ár. Samið var við Fastus, Medor og B.Braun. Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði. Nánari upplýsingar um samningana veitir Innkaupadeild Landspítala.

Samningar um vörur fyrir hjarta- og æðaþræðingu tóku gildi 18. janúar 2019 og gilda til 1.mars 2024. Samið var við  Bard Nordic, EPS Vascular, Fastus ehf., Icepharma hf., AZ Medica ehf. og Medor ehf. Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði.

Samningar um einnota lín og aðgerðapakkar tóku gildi 14. júni 2019 og gilda til 13. júní 2020. Samið var við Icepharma hf., Medor ehf. og Rekstrarvörur ehf. 

Heimilt er að framlengja samningnum um 1x3 ár.

Samningar um rekstrarvörur fyrir Speglun tóku gildi 18. janúar 2019 og gilda til 1. desember 2023. Samið var við Fastus ehf., Icepharma hf., Cook Medical og Inter ehf. Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði. Nánari upplýsingar um samningana veitir Innkaupadeild Landspítala.

Samningur um sondunæringu, fylgihluti og næringardrykki tók gildi 1. október 2015 og gildir til 30. september 2019. Samið var við Icepharma ehf. Samninginn í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði.

Nánari upplýsingar um samninginn veitir Innkaupadeild Landspítala.















































































Samningar um sprautur, nálar, þriggja rása krana, framlengingarslöngur og æðaleggi tóku gildi 15. október 2015 og gilda til 14. október 2019.  Samið var við AIH ehf. og Fastus ehf.  Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði.

Nánari upplýsingar um samningana veitir Innkaupadeild Landspítala.

Samningar um súrefnisvörur og fylgihluti gildir til 1. febrúar 2024. Samið var við Altis ehf., Donnu ehf., Fastus ehf., Icepharma hf., Rekstrarvörur ehf. og Stratus ehf. Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði.

Nánari upplýsingar um samningana veitir Innkaupadeild Landspítala.

 

 

 

 

Samningar um vökva- og blóðgjafarsett tóku gildi 1.september 2021 og gildir til 31. ágúst 2022. Samið var við Stratus ehf.
Heimilt er að framlengja samningnum um 2x1 ár.

Nánari upplýsingar um samninginn veitir Innkaupadeild Landspítala.

 

Samningar um þvagleggi og þvagvörur, tóku gildi 15. nóvember 2018 og gilda til 15. nóvember 2019.  Samið var við Actavis ehf., Fastus ehf., Icepharma hf. og Medor ehf. Samningana í heild má sjá á læstu svæði fyrir þær heilbrigðisstofnanir sem voru aðilar að útboði.

Nánari upplýsingar um samningana veitir Innkaupadeild Landspítala.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?