Leit
Loka

Þjónustukönnun sjúklinga

Þjónustukannanir sjúklinga á Landspítala eru gerðar árlega. Tilgangurinn er að fá upplýsingar um viðhorf sjúklinga til þjónustu spítalans og að nota niðurstöðurnar til umbóta í þjónustu við sjúklinga.

Nýjasta könnunin var gerð vorið 2023 og eru niðurstöður hennar birtar hér.

Niðurstöður könnunar eftir sviðum

Landspítali stendur árlega fyrir þjónustukönnun meðal sjúklinga og í úrtaki vorið 2023 var hluti þeirra sjúklinga sem útskrifaðist af spítalanum í febrúar, mars og apríl það ár.

Þeir fengu sent bréf með boði um þátttöku og lykilorð að könnuninni sem var rafræn. 

Þjónustukönnun sjúklinga 2023 - niðurstöður

 

Tilgangur og skilyrði

Tilgangur könnunarinnar var að fá upplýsingar um viðhorf sjúklinga til þjónustu spítalans og að nota niðurstöðurnar til umbóta í þjónustu við sjúklinga.
Þátttakendur voru valdir með lagskiptu slembiúrtaki.

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Sjúklingar sem útskrifuðust í febrúar – apríl ár hvert
  • a) 18 ára eða eldri
    b) börn
  • Útskrifaðir af legudeildum aðgerðasviðs og meðferðarsviðs
  • Legulengd var yfir eina nótt eða lengur 

Þjónustukönnun sjúklinga hefur verið gerð árlega frá 2012 og eru niðurstöður áranna 2017-2023 birtar hér með í nýjustu niðurstöðunum.
Ábyrgðarmenn þjónustukönnunar sjúklinga eru Tómas Þór Ágústsson framkvæmdastjóri lækninga og Ólafur G. Skúlason framkvæmdastjóri hjúkrunar.

Rafræn könnun

Könnunin í ár var rafræn, þ.e. þátttakendur fengu sent bréf í pósti með slóð á könnunina og ákveðnu kenni sem þurfti að slá inn til að fá aðgang að könnuninni. Einungis var hægt að svara einu sinni. Ef þátttakendur óskuðu eftir, gátu þeir hringt á hagdeild og fengið prentaðan spurningalista sendan með pósti sem var þá hægt að svara og senda tilbaka á hagdeild.
Þátttökubréfin fóru í póst um miðjan maí, sendar voru svo út tvær ítrekanir til þeirra sem voru ekki búnir að svara (og höfðu ekki afþakkað þátttöku eða lagst aftur inn). Fyrri ítrekunin var send í pósti tveim vikum eftir að þátttökubréfin fóru fyrst í póst og seinni ítrekunin fjórum vikum eftir að þátttökubréfin voru send. 
Í skýrslunni eru niðurstöður Landspítala bornar saman við niðurstöður úr sambærilegri könnun sem framkvæmd er af CareQuality Commission (CQC) í Englandi.

Gerð var gerð könnun á barnadeild. Sambærileg könnun hefur verið gerð árlega síðan 2015. Notast var við spurningalista sem er nokkuð frábrugðinn spurningalistanum sem lagður var fyrir á almennum deildum og var sendur forráðamönnum barnanna til að svara. 

Sjá talnaefni vegna könnunarinnar  

 

 

 

 

 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Bakgrunnur

Við undirbúning könnunarinnar leitaði Landspítali ráðgjafar frá Picker Institute Europe sem sér um þjónustukannanir fyrir NHS í Englandi. Fyrir utan spurningu nr. 4 eru allar spurningar könnunarinnar í eigu Picker Institute Europe (PIE) og Care Quality Commission (CQC) í Englandi og eru varðar höfundarrétti. Öll notkun þeirra er því óheimil án vitundar og samþykkis PIE og CQC. Landspítali hefur leyfi Picker Institute fyrir notkun þeirra. Spurning nr. 4 er úr Norpeq spurningalista sem þróaður var á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Skipan efnis í þessari samantekt tekur mið af skýrslu The Care Quality Commission um niðurstöður þjónustukönnunar NHS 2011 . 

 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?