Innkaupadeild Landspítala, f.h. Landspítala, óskar eftir aðilum til þátttöku í innkaupakerfi um þjónustu iðnaðarmanna í tilfallandi verkefnum á sviði iðngreina. Óskað er þátttöku iðnsveina, meistara og fyrirtækja sem starfa á þessum vettvangi. Um er að ræða gagnvirkt innkaupakerfi (DPS) um viðhaldsþjónustu iðnaðarmanna/fyrirtækja.
Innkaupakerfið skiptist í eftirfarandi sjö hluta iðngreina. Sækja skal um aðgengi að þeim hluta iðngreina innan innkaupakerfisins sem umsækjandi vill verða þátttakandi að.
1. Húsasmíði (Trésmíði)
2. Málun
3. Dúklagning og veggfóðrun
4. Múrverk
5. Rafvirkjun, smáspenna og lágspenna
6. Pípulagnir
7. Blikksmíði
Innan hverrar iðngreinar eru hæfisflokkar hvað varðar reynslu og menntun, en gerðar eru mismiklar kröfur um reynslu og menntun eftir eðli og umfangi verkefna sem nánar verða tilgreind í lokuðum örútboðum innan kerfisins og framkvæmd verða innan viðkomandi flokka. Ekki liggur fyrir hvað verður keypt á grundvelli samningsins og felur samningurinn ekki í sér loforð um ákveðið magn viðskipta.
Upplýsingar og leiðbeiningar til að skrá sig inn á rafræna útboðskerfið er að finna á vef Ríkiskaupa Leiðbeiningar
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð að finna á TendSign, sjá hlekk hér neðar