Morgunblaðið og LSH hafa komist að samkomulagi um dreifa blöðum í auknum mæli til sjúklinga sem dvelja í langan eða stuttan tíma á sjúkradeildum spítalans. Stefnt er að því að blöðin komi inn á deildir á morgnana og þannig geta sjúklingar og aðstandendur þeirra notið þeirra daglegu þæginda að lesa blaðið. Samkomulag Morgunblaðsins og LSH er gert til reynslu og verður það endurskoðað eftir 6 mánuði.
Morgunblaðið fyrir sjúklinga og aðstandendur
Morgunblaðinu verður í auknum mæli dreift á sjúkradeildir LSH, samkvæmt samningi sem gerður hefur verið við blaðið og gildir til reynslu í 6 mánuði.