„Samvinna og samskipti í bráðaþjónustu“ er yfirskrift Bráðadagsins 2021 sem verður föstudaginn 5. mars.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður Bráðadagurinn að þessu sinni rafrænn og í beinni útsendingu á Facebook Landspítala.
Bráðadagurinn er uppskeruhátíð rannsókna- og starfsþróunarverkefna bráðaþjónustu og um leið mikilvægur liður í símenntun starfsfólks.
Ráðstefnuna sækir fagfólk í þjónustu bráðveikra einstaklinga hvaðanæva í samfélaginu.
Heiti erinda:
- Samskipti og samvinna; Frá vettvangi, á bráðamóttöku og inn á gjörgæslu - sjúkratilfelli
- Slævingar fyrir inngrip á bráðamóttöku: framsýn, tilfellamiðuð rannsókn
- Rafræn algrím til greiningar á bráðum nýrnaskaða á bráðamóttöku
- Áverkaflokkun í dreifbýli
- Landsbjörg - slys og bráð veikindi í dreifbýli og utan alfaraleiða
- Brot í nökkvabeini greind á bráðamóttöku Landspítalans árin 2015-2019
- Rafskútuslys
- Sjúklingar í einangrun á bráðamóttöku: Kerfisbundin fræðileg samantekt
- Aldraðir á tímum Covid
- Frú Ragnheiður í heimsfaraldri
- Covid um víða veröld