Þjónustutími Hjartagáttar 10D á Landspítala Hringbraut breytist 1. júní 2012. Þetta er liður í hagræðingaraðgerðum á lyflækningasviði sem farið er í til þess að draga úr rekstrarkostnaði sviðsins.
Meginbreytingin er sú að lokað verður klukkan 16:00 á föstudögum í stað 20:00. Hjartagátt verður því opin allan sólarhringinn frá klukkan 08:00 á mánudögum til klukkan 16:00 á föstudögum. Lokað um helgar og sérstaka frídaga. Tekið verður á móti sjúklingum til klukkan 12:00 á föstudögum.
Þegar Hjartagátt er lokuð þurfa sjúklingar með einkenni frá hjarta að leita á bráðamóttökunaí Fossvogi.