Davíð O. Arnar, yfirlæknir Hjartagátt:
Vinnulagi við tíðni trópóninmælinga hjá sjúklingum sem leita á Hjartagátt með brjóstverk hefur verið breytt. Hingað til hefur trópónín verið mælt við komu og 6 klukkustundum eftir komu, ef við á. Þetta hefur verið gert í þeim tilgangi að greina eða útiloka hjartadrep hjá þeim sem koma með brjóstverk eða önnur einkenni sem gefa grun um slíkt.
Landspítali hefur á undanförnum mánuðum notað nýja aðferð við mælingar á trópóníni og mælt svokallað hánæmt trópónín T. Þessi nýja mæliaðferð er mun næmari en sú fyrri og mælist hækkun á trópóníni T fyrr í blóði við hjartadrep en áður. Þetta gefur möguleika á að bæði greina og útiloka hjartadrep fyrr en áður.
Í ljósi þessa höfum við ákveðið að stytta tímann milli trópónínmælinga á Hjartagátt. Verður trópónín T nú mælt við komu og 3 klukkustundum eftir komu, ef við á. Þetta er í samræmi við klínískar leiðbeiningar Evrópusamtaka hjartalækna um bráða kransæðasjúkdóma. Með þessu verklagi hefur eðlileg trópóninmæling 3 klukkustundum eftir komu meira en 99% neikvætt forspárgildi fyrir hjartadrepi.
Það er rétt að undirstrika að niðurstöður trópónínmælinga verður alltaf að túlka í samræmi við klínísk einkenni, skoðun og hjartalínurit. Þegar næmi trópóníns eykst minnkar sértækið og túlkun niðurstaðna mælinga verður vandasamari. Það kunna að vera sjúklingar þar sem rétt er að íhuga tíðari trópónín mælingar en á 3 klukkustunda fresti og eins geta verið tilvik þar sem talið er rétt að fá enn frekari trópónín mælingar eftir 3 klukkustundir. Ef trópónín gildi mælt eftir 3 klukkustundir er eðlilegt kunna jafnframt að vera fyrir hendi klínískar ástæður til lengja vöktun sjúklings í vissum tilfellum.