Lyfjafræðingur / Komdu og vertu memm
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni? Fórst þú í lyfjafræði til að vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum? Hefur þú áhuga á að vinna í teymi fólks sem brennur fyrir því sem það er að fást við á hverjum degi? Þá gætum við verið með rétta starfið fyrir þig.
Lyfjaþjónusta er að leita að öflugum lyfjafræðingum með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag í þéttu samstarfi við aðra lyfjafræðinga sem og aðrar fagstéttir. Viðkomendur þurfa að vera sveigjanlegir, framsæknir og tilbúnir að takast á við verkefni í mótun. Helstu verkefni munu taka mið af reynslu og menntun þess sem verður ráðinn. Um er að ræða dagvinnu.
Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Nú starfa um 40 lyfjafræðingar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Mikil framþróun er framundan og undirbúningur er hafinn við að móta verkferla og efla þjónustustig.
- Viðtöl við sjúklinga og skráning lyfjanotkunar
- Samskipti við lyfjaskömmtunarfyrirtæki og aðrar deildir sjúkrahússins
- Vinnsla og skráning fyrirspurna
- Umbótarverkefni innan klínískrar lyfjaþjónustu
- Þátttaka í uppbyggingu gæðakerfis
- Önnur tilfallandi verkefni
- Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
- Þekking á umgjörð lyfjamála í heilbrigðisþjónustu
- Reynsla af störfum í apóteki eða sambærilegu þjónustustarfi kostur
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Afbragðs samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lyfjafræðingur, teymisvinna