Frá árinu 2010 hefur ráðstefnan "Fjölskyldan og barnið" verið haldin árlega á vegum kvenna- og barnasviðs LSH. Ráðstefnan er þverfagleg ráðstefna og er fyrir starfsfólk sviðsins og annað fagfólk. Á ráðstefnunni eru kynntar rannsóknir og verkefni sem tengjast viðfangsefnum og starfsemi kvenna- og barnasviðs. Í ár verður sjónum beint að því frábæra rannsókna- og gæðastarfi sem á sér stað á Landspítala auk þess sem Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í Háskóla Íslands mun fjalla um nýjustu niðurstöður rannsóknar um áfallasögu kvenna og Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt í Háskólanum í Reykjavík mun fjalla um niðurstöður nýjustu rannsókna hjá Rannsóknum og greiningu.