Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er 14. júní ár hvert og því er fagnað með viðeigandi hætti í Blóðbankanum.
Félagar úr Blóðgjafafélaginu grilla pylsur frá kl 11:00 á alþjóðlega blóðgjafadeginum 14. júní 2023 í Blóðbankanum fyrir gesti og gangandi meðan birgðir endast og allir blóðgjafar fá rós frá Grænum markaði. Kaffistofa blóðgjafa lumar líka á einhverju góðgæti. Allir eru velkomnir.
Í tilefni dagsins ritar Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni „Takk fyrir að gefa blóð“. Þar segir hann meðal annars:
„Um þessar mundir eru sjötíu ár liðin frá stofnun Blóðbankans en blóðsöfnun hófst þó fyrr á Íslandi. Á árum áður fóru blóðgjafir fram á milli einstaklinga en eftir því sem þekkingu og tækni vatt fram fór að vera hægt að kæla blóð og geyma það til notkunar. Öruggar blóðgjafir eru í dag hornsteinn í allri starfsemi sjúkrahúsa og án blóðbirgða stæðum við vanmáttug andspænis alvarlegum sjúkdómum og slysum. Blóð hvers blóðgjafa er flokkað í ólíka blóðhluta og kemur blóðgjafi þannig allt að þremur einstaklingum til bjargar með hverri blóðgjöf. Auk þess að vera nýttir í tengslum við slys og skurðaðgerðir eru blóðhlutar reglulega notaðir við meðferð krabbameinssjúklinga og til a bjarga lífi nýbura og fyrirbura. Öryggi sjúklinga er lykilþáttur og því gilda ákveðin skilyrði um blóðgjafa.“
Viðtöl við blóðgjafa í myndskeiðinu: Heiðdís Snorradóttir, blóðgjafi og næringarfræðingur, og Davíð Stefán Guðmundsson, blóðgjafi og formaður Blóðgjafafélags Íslands.