Lilja Stefánsdóttir hefur tekið við umsjón Hringbrautarverkefnisins á Landspítala af Benedikt Olgeirssyni. Uppbyggingin við Hringbraut er einn stærsti áfangi í íslensku heilbrigðiskerfi frá upphafi. Nýbyggingar þar og önnur endurnýjun á innviðum Landspítala verður bylting í aðstöðu, þjónustu og öryggi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. Hringbrautarverkefnið er hluti af starfsemi þjónustusviðs spítalans en þar fyrir eru lyfjaþjónusta, heilbrigðis– og upplýsingatækni, aðföng og umhverfi og rannsóknarþjónusta. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Nýjan Landspítala ohf (NLSH).
Í verkahring Lilju verður meðal annars samræma vinnu við þarfagreiningu fyrir nýtingu húsnæðis Landspítala, nýbygginga og eldri bygginga og þátttaka í gerð spálíkana um þróun á umfangi starfseminnar. Einnig mun hún koma að þróun starfsemi, flæðis, ferla, innra skipulags og mönnunar til að tryggja öruggari og skilvirkari þjónustu að verkefni loknu. Lilja mun í samstarfi við NLSH koma annars vegar að þarfagreiningu, forhönnun og fullnaðarhönnun og hins vegar tækjavæðingu og þróun upplýsingatækni. Undirbúningur flutninga í nýtt húsnæði fellur jafnframt þarna undir.
Lilja Stefánsdóttir hefur átt farsælan feril hjá Landspítala um langt árabil sem hjúkrunarfræðingur og stjórnandi, meðal annars framkvæmdastjóri, sviðsstjóri og deildarstjóri. Hún er með meistarapróf í stjórnun í heilbrigðisþjónustu frá Minnesota-háskóla.