Alþjóðlegur dagur handhreinsunar er 5. maí 2021. Haldið hefur verið upp á daginn síðan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setti af stað handhreinsiverkefnið „Save lifes: clean your hands“ árið 2009. Markmið með alþjóðlegum degi handhreinsunar er að efla vitund um mikilvægi handreinsunar.
Mikilvægi handhreinsunar er án efa orðið flestum kunnug. Handhreinsun er einn af grunnþáttunum í sóttvörnum og sá áhrifamesti til að draga úr dreifingu örvera manna á milli og í umhverfi. Til þess að handhreinsun sé áhrifarík er mikilvægt að hún sé rétt og á réttum tíma.
Áhersla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar þetta árið er á góða handhreinsun „þar sem umönnun er veitt“ (at the point of care). „Þar sem umönnun er veitt“ kemur þrennt saman; sjúklingur, heilbrigðisstarfsmaður og umönnun/meðferð sem felur í sér snertingu við sjúkling eða umhverfi hans.
Í heilbrigðisþjónustu er nauðsynlegt að sé handhreinsun sé rétt og hendurnar alltaf hreinsaðar þegar aðstæður kalla á það, þ.e. skv. fimm ábendingum fyrir handhreinsun. Þannig er stuðlað að bættu öryggi sjúklinga.