Starfsmenn Landspítala í fjórum félögum BHM hafa nú verið í verkfalli í fjórar vikur. Fyrstu launagreiðslur frá því að verkfall hófst voru um nýliðin mánaðamót. Fjársýsla ríkisins sér um frádrátt í verkföllum í samræmi við reglur sem fjármálaráðuneytið setur. Samkvæmt þeim á frádráttur vegna verkfalls sér stað óháð því hvort um vinnuskyldu á verkfallsdögum er að ræða eða ekki.
Verkfall ljósmæðra er boðað á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Ef starfsmaður á ekki vinnuskyldu á þessum dögum kann sá hinn sami að álíta að enginn frádráttur eigi að eiga sér stað. Svo er þó ekki. Það eru 12 virkir dagar sem falla á boðaða verkfallsdaga í apríl. Það gera 55% af meðalmánuðinum (21,67 dagar). Því er dregin af öllum 55% af reglulegum mánaðarlaunum vegna verkfalla í apríl.
Ríkið kærði verkfallsboðun Ljósmæðrafélags Íslands og Félags íslenskra náttúrurfræðinga. Vegna þessa var ekki dregið af fyrirframgreiddum launum þann 1. apríl, eins og annars hefði verið gert, og því fá félagsmenn þessara félaga sem eru á fyrirframgreiðslu tvöfaldan frádrátt nú, þ.e. eftirá vegna apríl og fyrirfram vegna maí. Því miður varð þetta til þess að laun urðu „neikvæð“ hjá nokkrum starfsmönnum um þessi mánaðamót. Þau laun eru þó ekki innheimt sérstaklega heldur gerð upp þegar verkfall leysist.
Vegna launa starfsmanna í verkfalli
Frá Landspítala: