Laugarásinn, meðferðargeðdeild á geðsviði Landspítala, hefur fengið 700 þúsund króna styrk frá Caritas á Íslandi. Samtökin stóðu fyrir tónleikum í Kristskirkju Landakoti í nóvember 2014 og var ákveðið að láta aðgangseyrinn renna til starfsemi Laugarássins. Styrkurinn mun nýtast við uppbyggingu á vitrænni endurhæfingu fyrir þjónustuþega deildarinnar og stuðla að auknum lífsgæðum þeirra.
Caritas á Íslandi eru samtök sem aðstoða fólk sem er hjálpar þurfi hérlendis og erlendis.
Laugarásinn þjónustar unga einstaklinga með geðrofssjúkdóma en vitræn skerðing getur verið ein af afleiðingum sjúkdómsins.