Í tilefni Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna miðvikudaginn 10. september 2014 verður haldin málstofa í Iðnó um þagnarhjúpinn sem skapast hefur um sjálfsvíg.
Einnig verða haldnar kyrrðarstundir klukkan 20:00 á þremur stöðum á landinu til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Dagskrá alþjóðlega sjálfsvígsforvarnadagsins er unnin í víðtæku samstarfi ýmissa stofnana og félaga sem koma að málefnum sjálfsvíga í samfélaginu.
Samstarfsaðilarnir eru Þjóðkirkjan, Embætti landlæknis, geðsvið Landspítala, Iðnó, Ný dögun, Samhygð, Lifa, Hugarafl, Rauði krossinn og Geðhjálp.