Hjartagátt Landspítala eignaðist á dögunum nýtt hjartarafstuðstæki. Tækið er af gerðinni Lifepak 20 frá Physio Control og er af fullkomnustu gerð. Það leysir af hólmi gamalt rafstuðstæki sem bilaði nýlega. Hjartarafstuðstækið kemur að notum við endurlífgun hjartasjúklinga og meðferð á takttruflunum. Tæki þetta er gjöf frá hjónunum Birni Ófeigssyni og Mjöll Jónsdóttur sem reka vefsíðuna Hjartalíf. Þau öfluðu fjár til kaupanna með því að halda styrktartónleika í Gamla bíói í sumar þar sem fram komu fjölmargir tónlistarmenn sem allir gáfu vinnu sína. Björg Sigurðardóttir, deildarstjóri Hjartagáttar, og Karl Andersen, settur yfirlæknir, veittu tækinu viðtöku og færðu þeim Birni og Mjöll hjartans þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Leit
Loka