"Við fyrir þig", styrktarsjóður bráðamóttöku Landspítala, tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 18. ágúst 2012.
Hægt er að heita á hlauparana með því að smella hér. (óvirkur hlekkur)
"Við fyrir þig er þjónustuáheit bráðasviðs Landspítala. Það vísar til þess em skiptir máli varðandi þjónustuna á bráðamóttöku LSH. Við erum hér fyrir sjúklinginn, þann sem þarf á þjónustunni að halda og aðstandendur hans. Bráðamóttaka í Fossvogi tekur á móti veikum og slösuðum einstaklingum og er bráðamóttakan í Fossvogi sú stærsta í landinu. Um 100.000 einstaklingar leita á móttökuna á ári hverju sem svarar til þess að árlega komi þriðji hver Íslendingur á bráðamóttökuna í Fossvogi. Meginviðfangsefni bráðasviðs eru: þjónusta við sjúklinga, menntun og rannsóknir. Það fé sem safnast verður notað til að endurnýja tækjabúnað bráðamóttökunnar í Fossvogi."