Forseti Íslands og heilbrigðisráðherra klipptu á borða og opnuðu nýtt og glæsilegt göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítala við Dalbraut.
Nýtt og glæsilegt göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítala, BUGL, var formlega tekið í notkun að Dalbraut 12 þriðjudaginn 9. september 2008. Fjöldi fólks var við athöfnina, meðal annarra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sem opnuðu húsið formlega með því að klippa á borða.
Nýtt göngudeildarhús BUGL formlega opnað
- Ávarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra
- Ávarp Björns Zoëga setts forstjóra Landspítala
- Ávarp Ólafs Ó. Guðmundssonar yfirlæknis BUGL
- Ávarp Lindu Kristmundsdóttur deildarstjóra göngudeildar BUGL.
Athöfnin hófst með því að Kór Kársnesskóla lék fyrir gesti og fór á kostum undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.