Göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar, BUGL, tekið í notkun
Ávarp Björns Zoëga setts forstjóra Landspítala
Herra forseti, heilbrigðisráðherra, ágæta samstarfsfólk, aðrir gestir!
Um leið og við fögnum opnun nýrrar göngudeildar hér í dag, minnumst við með miklu þakklæti allra sem hafa gert okkur kleift að ná þessum glæsilega áfanga í starfi spítalans, …….áfanga sem mun nýtast afar vel í baráttunni okkar við geðræn vandamál barna og unglinga. Fyrst ber að nefna kvenfélagið Hringinn sem hefur gefið 50 milljónir króna til verksins. Þessu stórhuga, ……og ég leyfi mér að segja stórmerkilega hugsjónafélagi færum við enn einu sinni innilegar þakkir í dag. Við viljum einnig þakka Thorvaldsenskonum, Kiwanismönnum, Lionsmönnum og ýmsum kvenfélagasamtökum og öðrum félagssamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum, fyrir þeirra mikilvægu framlög til nýju göngudeildarinnar. Hér hafa því margir lagst á eitt um að efla verulega aðstöðu þeirra sem í daglegu starfi sínu bæta geðheilsu barna og unglinga…….Gleymum ekki að hér vinna um það bil 100 starfsmenn ssem vinna að um 7000 komur sjúklinga á ári.
Ekki skaðar skilningur yfirvalda á þessum málaflokki. Heilbrigðisyfirvöld hafa veitt fé af fjárlögum í þetta verkefni, en það er ekki nóg að byggja og laga aðstöðu. Heilbrigðisráðherra veitti auknu fé til starfsemi BUGL fyrir rúmu ári síðan. Með samstilltu átaki hefur tekist að nýta þetta fé til sóknar sem skilað hefur minnkandi biðlista, nýjum stöðugildum og auknu samstarfi við heilsugæslu og aðra fagaðila utan BUGL. Verkefni eins og, brúum bilið, bráðaþjónusta, lífið kallar, klókir krakkar, fjörkálfar, vettvangsþjónusta, fræðslustjóri og bætt rafræn skráning eru allt verkefni sem styrkst hafa við þessa nýju sókn. Þessi upptalning minnir okkur á að fólk með kunnáttu og vilja til góðra verka verður alltaf kjarni starfseminnar, þó svo að umgjörð skipti líka miklu máli og sé vel þegin.
Við væntum þess að sú trausta umgjörð sem nú er sett um starfsemi göngudeildar BUGL efli þjónustu á þessu sviði enn meira. Það er von mín og ósk að við nýtum nýtt húsnæði til enn meiri umbóta í þjónustunni – víst er að verkefnin og tækifærin eru mörg – og fyllsta ástæða til bjartsýni.
Það er tími breytinga á Landspitala, það vona ég að hafi ekki farið fram hjá neinum. Meðal markmiða þessara breytinga er aukinn dreifstýring með samtvinnun á faglegri ábyrgð og ábyrgð á fjármálum. Auka öryggi sjúklinga, aukið vísindastarf, bæta kennslu og efla hana. Auka ánægju sjúklinga og starfsmanna. Þessi bygging sem opnuð er formlega í dag er stað festing á því að starf BUGL hefur verið að breytast og eflast. Göngudeildin er orðinn það stór starfseining að hennar vöxtur og framþróun er og verður vegan þeirrar þekkingar og framleiðslu sem hér fer fram. Vegna þessara auknu starfsemi ákvað spítalinn að auglýsa fyrr í sumar sérstakt starf yfirlæknis göngudeildar BUGL. Eftir hefðbundinn umsóknarfrest og skoðun hjá stöðunefnd landlæknis, voru höfð viðtöl við umsækendur. Spítalinn hefur ákveðið að ráða Guðrúnu Bryndísi Guðmundsdóttur sem yfirlækni göngudeildar BUGL frá og með deginum í dag. ….Okkar hamingjuóskir til hennar og óskur henni velfarnaðar í starfinu. Við væntum mikils af henni og öllu starfsfólkinu hér. Trúum á framtíðina, til hamingju með daginn.
Takk