VEISTU
EF ÞÚ VIN ÁTT ÞANN ER ÞÚ VEL TRÚIR OG VILT ÞÚ AF HONUM GOTT GETA GEÐI SKALTU VIÐ ÞANN BLANDA OG GJÖFUM SKIPTA FARA AÐ FINNA OFT |
Afhjúpað hefur verið listaverk sem Sjúkraliðafélag Íslands gefur Landspítala - háskólasjúkrahúsi í tilefni af 40 ára afmæli félagsins.
Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður félagsins og Magnús Pétursson forstjóri LSH afhjúpuðu verkið við athöfn föstudaginn 17. nóvember 2006.
Listaverkið er í alfaraleið en því var komið fyrir á vegg við stigapall nærri aðallyftum á 1. hæð á Landspítala Hringbraut.
Kristín Á. sagði í ávarpi sínu aðgjöfin væri viðurkenning félagsins til starfsmanna sjúkrahússins "...fyrir frábær störf á erfiðum tímum sem tekið hefur á þolrif allra þeirra sem vinna við sjúkrahúsið".
Forstjóri færði félaginu alúðarþakkir spítalans og starfsmanna fyrir gjöfina.
Ávarp Kristínar Á. Guðmundsdóttur - smellið hér.