Afhending listaverks
á stigapalli ofan við anddyrið á Landspítala Hringbraut
í tilefni af 40 ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands
17. nóvember 2006
Ágætu vinir!
Á tímamótum sem þessum, þ.e. 40 ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands, er okkur nauðsynlegt að líta yfir farinn veg í þeim tilgangi að gleðjast yfir því sem vel var gert, læra af mistökum okkar, því sem miður hefur farið og þakka forsjóninni fyrir góð kynni af samferðarfólki sem orðið hefur á leið okkar.
Um sum þeirra kynna má segja að þau séu eins og hver önnur skyndikynni sem litlu breyta, önnur marka áþreifanleg spor á samtíðina og umhverfi okkar.
Það má því með sanni segja að við höfum lifað á tímum umbreytinga og byltinga á sviði heilbrigðisþjónustunnar.
Til skamms tíma voru hér í Reykjavík þrjú stór sjúkrahús sem eftir mikið umrót, sameiningar og sundrungu hafa verið sameinuð í eitt stórt sjúkrahús.
Fyrir sjúkraliða, eins og annað starfsfólk, skipti það miklu máli hvernig til tækist því minnstu breytingar í vinnuumhverfinu hafa oftar en ekki alvarleg áhrif á líðan þeirra sem þeim þurfa að taka.
Þrátt fyrir miklar fjárhagsþrenginar og kröfu stjórnvalda um niðurskurð og aðhald hefur starfsfólki Landspítala - háskólasjúkrahúss tekist að halda sönsum í erfiðri skerjasiglingu sem gert hefur miklar kröfur til starfsmanna sjúkrahússins, án tillits til starfs eða stöðu.
Allir hafa lagst á eitt að gera sér lífið bærilegt þrátt fyrir allt.
Fyrst og síðast hefur það tekist fyrir góðan vilja, virðingu og vitund þeirra sem að málunum koma fyrir nauðsyn þess að fullt samráð sé haft við starfsfólk og upplýsingum sé komið á framfæri við þá sem hagsmuna hafa að gæta og málið varðar hverju sinni.
Með tilliti til þess sem hér hefur verið sagt hefur stjórn Sjúkraliðafélags Íslands ákveðið að veita starfsmönnum Landspítala - háskólasjúkrahúss viðurkenningu fyrir frábæra frammistöðu á erfiðum tímum umróts og umbreytinga sem hver einasti einn hefur orðið að takast á við frá degi til dags.
Verkið sem hér er afhjúpað er, eins og margt annað gott, samstarfsverkefni ólíkra aðila, þeirra Guðjóns Davíðs Jónssonar grafísks hönnuðar, Soffíu Árnadóttur grafísks hönnuðar og sérhæfðs leturskrifara og Antons Helga Jónssonar ljóðskálds og textahöfundar, auk okkar sem stöndum að gerðinni fyrir hönd Sjúkraliðafélags Íslands.
Textinn sjálfur sem grundvallar verkið er sóttur í Eddukvæði.
Hávamál eru mælt af hinum há, lögð í munn Óðins þar sem hann segir fá lífsspeki sinni og hvernig skuli bera sig.
Okkur sem stöndum að gerð þessa verks fannst textinn eiga vel við um tilgang okkar og markmið með gjöfinni og höfða til allra þeirra sem málið varðar, starfsfólk sjúkrahússins stjórnenda, atvinnuveitenda okkar, þ.e. sjúklinga sem hingað leita sér til heilsubótar, eins og ekki síður til þeirra sem hér koma til að gera sjúklingum lífið léttbærara.
Textinn fjallar um siðferði, siðfræði og um rétta hegðun og er svohljóðandi:
VEISTU EF ÞÚ VIN ÁTT,
ÞANN ER ÞÚ VEL TRÚIR,
OG VILT ÞÚ AF HONUM GOTT GETA,
GEÐI SKALTU VIÐ ÞANN BLANDA
OG GJÖFUM SKIPTA,
FARA AÐ FINNA OFT.
Ég vil biðja Magnús Pétursson forstjóra Landspítala að koma til mín og taka við viðurkenningu félagsins fyrir sína hönd og annarra starfsmanna sjúkrahússins
fyrir frábær störf á erfiðum tímum sem tekið hefur á þolrif allra þeirra sem vinna við sjúkrahúsið.
Mynd fyrir neðan: Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, ávarpar gesti þegar listaverkið var afhjúpað.