Sumarstörf 2024 - útgáfa auðkenniskorta í nýliðamóttöku Landspítala
Býrð þú yfir ríkri þjónustulund, ert fljót/-ur að læra nýja tækni og í leit að öðruvísi og spennandi sumarstarfi?
Útgáfa auðkenniskorta tilheyrir mannauðsdeild og nýliðamóttöku Landspítala. Í starfinu felst öll vinnsla auðkenniskortagerðar fyrir starfsfólk, allt frá myndatöku til prentunar korta, auk veitingu aðgangsheimilda og önnur tengd þjónusta, svo sem vöktun beiðnakerfis, pósthólfs og símsvörun.
Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtilegt verkefni í sumar. Markmiðið er ávallt að veita skjóta og góða þjónustu.
Um er að ræða afleysingu í 7 vikur á tímabilinu 12. júní til og með 31. júlí, í dagvinnu frá kl. 8-16.
- Útgáfa auðkenniskorta
- Veiting aðgangsheimilda
- Myndatökur fyrir auðkenniskort
- Símsvörun og vöktun beiðnakerfis/tölvupósthólfs
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera í pdf formi.
Með umsókn skal fylgja:
- Staðfesting á um hversu mörgum ECTS einingum er lokið þegar störf hefjast.
- Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður