Hjúkrunarfræðingur - Dagdeild skurðlækninga Fossvogi
Við leitum að hjúkrunarfræðingum með sterka faglega sýn og áhuga á þátttöku í faglegri framþróun í framsæknu starfsumhverfi á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi. Í boði er fjölbreytt starfssvið og góðir möguleikar á sí- og endurmenntun, einnig er boðið upp á góða einstaklingshæfða aðlögun. Unnið er á þrískiptum vöktum og er upphaf starfa og starfshlutfall samkomulag.
Á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi starfa 22 einstaklingar og þar ríkir góður starfsandi. Starfsemin felur í sér þjónustu við sjúklinga sem fara í minniháttar aðgerðir, s.s. æða-, lýta-, hne-, bæklunar-, heila-, tauga- og barnaskurðaðgerðir. Einnig er tekið á móti sjúklingum í undirbúning fyrir aðgerðir sem krefjast lengri legutíma, auk þess eru á deildinni 5 rúm fyrir liðskiptaaðgerðir. Deildin er með sólarhringsopnun 5 daga vikunnar og eru vaktir þrískiptar, morgun-, kvöld- og næturvaktir.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun sjúklinga dagdeildar skurðlækninga
- Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í teymisvinnu
- Umbótastarf í samstarfi við hjúkrunarfræðinga og lækna deildarinnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna