Vefstjóri
Við óskum eftir hæfum og reyndum einstaklingi til að leiða mótun vefstefnu Landspítala, þróa lausnir og efla stafræna upplifun skjólstæðinga. Viðkomandi mun bera ábyrgð á stefnumótun, verkefnastýringu og þróun á ytri og innri vefsvæðum spítalans, svo sem Landspítali.is, innri vef Landspítala og Workplace. Þetta hlutverk krefst skilnings á stafrænni vegferð, tækni og getu til að samræma vefstefnu við markmið framkvæmdastjórnar.
Landspítali er einn stærsti og mikilvægasti vinnustaður landsins. Mikil framþróun læknavísinda og tækni auk þeirra miklu breytinga í þjónustu sem almenningur þarf í framtíðinni setur miklar kröfur á spítalann. Með byggingu nýs meðferðarkjarna samhliða stafrænni umbreytingu í starfseminni ætlar Landspítali að verða í fremstu röð spítala í Evrópu. Þessum markmiðum verður ekki náð án þess að nýir ferlar, ný tækni, samþætting og sjálfvirkni leiki lykilhlutverk og forsenda árangurs er frábært starfsfólk. Vilt þú vera leiðandi í að gera þessa framtíð að veruleika?
- Leiða flutning núverandi vefs Landspítala yfir á island.is
- Leiða samskipti milli ólíkra haghafa í starfseminni við þróun lausna
- Innleiða notendamiðaða hönnun (UX) og viðmót (UI) til að bæta þjónustu við notendur
- Móta og framfylgja stefnu Landspítala varðandi notkun vefmiðla
- Þátttaka í efnisgerð og miðlun efnis
- Reynsla af verkefnastýringu og innleiðingu vefja og stafrænna lausna
- Þekking og reynsla af notendamiðaðri hönnun (UX) og viðmóti (UI)
- Reynsla af ólíkum vefumsjónarkerfum
- Reynsla af verkferlagreiningu og stafrænni umbreytingu
- Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar, þjónustulund og frumkvæði
- Góð greiningar- og skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: vefstjóri, upplýsingatækni, tölvunarfræðingur, verkefnastjóri, nýsköpun