Globeathon, alþjóðlegt hlaup til að efla vitund, þekkingu og rannsóknir tengdar krabbameinum í kvenlíffærum, verður sunnudaginn 13. september 2015.
Hlaupið verður í 80 löndum víðs vegar um heiminn.
Hlaupið verður í 80 löndum víðs vegar um heiminn.
Styrktarfélagið Líf og Krabbameinsfélag Íslands standa saman að þessum viðburði en Globeathon er fyrir alla; konur, börn og karla.
Boðið verður upp á 5 kílómetra hlaup, 5 kílómetra göngu og 10 kílómetra hlaup.
Hlaupið verður og gengið um Fossvogsdalinn frá Háskólanum í Reykjavík. Upphitun hefst við ráðsmarkið kl. 10:45.
Skráning og allar frekari upplýsingar eru á hlaup.is.
Einnig upplýsingar á globeathon.com og Facebooksíðu hlaupsins: Globeathon-Ísland