Listmuna- og minjanefnd Landspítala sótti um styrk í Listskreytingasjóð, í samvinnu við stjórnendur á göngudeild Kleppi, þann 1. maí 2013 með það að markmiði að gera anddyri göngudeildarinnar vistlegra sem ekki var talin vanþörf á. Styrkur fékkst frá sjóðnum til kaupa á listskreytingu og í framhaldi af því var stofnuð nefnd til að gera tillögur um listaverkakaup. Í henni sátu frá Listskreytingasjóði Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarmaður og Svava Björnsdóttir myndlistarmaður, frá göngudeild geðsviðs á Kleppi Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir deildarstjóri og Egill T. Jóhannsson, formaður listmuna- og minjanefndar Landspítala. Með nefndinni starfaði til að byrja með Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, starfsmaður nefndarinnar, en síðan tók við starfi hennar Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt á Landspítala.
Valdir voru tveir veggir til að koma fyrir stórum verkum með samtímalistaverkum og gerðar nauðsynlegar breytingar og endurbætur, hurðir málaðar, skipt um gluggatjöld og húsgögn og fleira til þess að gera anddyrið sem hreinlegast og notalegast fyrir sjúklinga og fjölskyldur að bíða eftir þjónustu.
Nefndin valdi síðan Áslaugu Thorlacíus úr hópi myndlistarmanna til að skreyta anddyrið. Verk hennar, Grös, er ljósmynd sem blasir við þegar gengið er inn. Myndina tók Áslaug í holtinu norðan við Klepp sumarið 2014. Sex blýants- og vatnslitateikningar hanga á suðurvegg anddyrisins. Þær eru gerðar eftir blómum og grösum sem Áslaug tíndi á sömu slóðum. Við valið á grösum studdist hún við bókina Íslenskar lækningajurtir eftir Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur. Orð og setningar í teikningunum eru tilvitnanir í þá bók, ýmist orðréttar eða lítið eitt breyttar.
Göngudeildin á Kleppi er þverfagleg göngudeild þar sem vinna hinar ýmsu stéttir með áherslu á teymisvinnu (geðlæknar, deildarlæknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, sjúkraþjálfar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, prestur, lækna- og móttökuritarar). Meinatæknir kemur einu sinni í viku til að taka blóð í blóðrannsóknir. Helsta hlutverk og verkefni göngudeildarinnar er að sinna eftirfylgd og meðferð langveikra geðsjúkra og aðstandenda þeirra. Um 250-300 alvarlega geðsjúkir sækja þjónustu göngudeildarinnar reglubundið (8-10 þúsund komur ári).
Á hópmynd: Svava Björnsdóttir myndlistarmaður, Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarmaður, Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, fyrrverandi starfsmaður listmuna- og minjanefndar Landspítala, Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir, deildarstjóri göngudeildar Kleppi, Áslaug Thorlacíus myndlistarmaður og höfundar verka, María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs, Egill T. Jóhannsson, formaður listmuna- og minjanefndar Landspítala og Ásdís Ingþórsdóttir arkítekt á Landspítala.