Kvennakór Kópavogs hefur styrkt líknardeildina í Kópavogi um 1.114.000 krónur. Féð er ágóði af árlegum styrktartónleikum kórsins, „Hönd í hönd“ sem haldnir voru í Austurbæ þann 9. nóvember 2014. Á tónleikunum kom fram einvalalið tónlistarmanna og sérstakir gestir voru Páll Óskar Hjálmtýsson, Alma Rut Kristjánsdóttir og Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Ágóðinn af tónleikunum varð 2.227.927 kr og var skipt jafnt á milli líknardeildarinnar og Mæðrastyrksnefndar Kópavogs. Kórsystur afhentu gjafabréf við athöfn í Gerðarsafni 10. desember og var innilega þakkaður stuðningurinn.