„Kjaradeila lækna nú er birtingarmynd miklu stærra vandamáls og til þess verður að horfa þegar unnið er að lausn málsins. Íslenska heilbrigðiskerfið hefur verið undirfjármagnað í fjölda ára og þar getum við horft til tímabilsins langt aftur fyrir hrun.“
Þetta segir Páll Matthíasson í forstjórapistli. Hann vitnar í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD um framlag ríkja til heilbrigðisþjónustu sem hlutfalls af vergri þjóðarframleiðslu.
„Værum við á pari við frændur okkar Dani, sem verja 11% af VLF til heilbrigðisþjónustu, myndu framlög til heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi aukast um tugmilljarða króna og er þá átt við „nýja“ peninga inn í kerfið, ekki verðlags- og launauppfærslur. Mikilvægt er að horft sé til þessara staðreynda þegar staðan í heilbrigðiskerfinu er rædd og stórar ákvarðanir teknar. Við erum komin að þeim tímamótum að raunveruleg og umtalsverð innspýting fjármuna í kerfið sé þörf. Það á ekki að koma á óvart enda skákum við ekki mikið lengur í því skjólinu að aldursdreifing á Íslandi sé með hagstæðari hætti en annars staðar. Við eldumst hratt og þá þurfum við meira á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda.“
Í pistlinum er birt „skemmtileg jólakveðja frá kór hér í bæ sem ber það hæverska nafn Ljótikór“.