Hjartagátt Landspítala fékk nýverið afhentar gjafir frá Lionsklúbbunum Ægi og Fjölni að andvirði einnar milljónar króna. Þessi upphæð er afrakstur af kúttmagakvöldi þeirra síðastliðið vor. Meðal fjölbreyttra gjafa sem deildin fékk voru, ísskápar, sjónvarp, skrifborðstólar, vinnuborð á hjólum, taukörfur, göngugrind, baðstóll, baðvigt, súrefnismælar og" lazyboy" stóll. Þessar gjafir munu án nokkurs vafa nýtast vel bæði skjólstæðingum Hjartagáttar og starfsfólki. Flestar gjafirnar leysa af hólmi vel nýtta hluti sem eru komnir all nokkuð til ára sinna. Stuðningur sem þessi er Landspítala gríðarlega mikilvægur og þá ekki síst sá hlýhugur sem henni fylgir en þetta er þriðja árið í röð sem þessir tveir Lionsklúbbar styrkja Hjartagáttina. Hjartagáttin þakkar Ægis og Fjölnismönnum kærlega fyrir þeirra stuðning.
Leit
Loka