María Ragnarsdóttir, sjúkraþjálfari á Landspítala, var meðal þriggja íslenskra uppfinningamanna sem fengu viðurkenningu á alþjóðlegri ráðstefnu uppfinningamanna, INPEX, í Pittsburgh í Bandaríkjunum 18. til 21. júní 2014. Hin voru Elinóra Inga Sigurðardóttir og Valdimar Össurarson. María hlaut tvenn verðlaun, gullverðlaun og sérstök heiðursverðlaun frá Samtökum uppfinningamanna í Póllandi. Verðlaunin hlaut hún fyrir uppfinningar sínar sem nefnast ÖHM-Andri og PA Pressure Puffin. Annars vegar er það tæki sem mælir öndunarhreyfingar hjarta- og lungnasjúklinga, hins vegar tæki sem mælir hreyfingar á milli hryggjarliða og auðveldar greiningu og meðferð við sjúkdómum í hryggsúlunni.
INPEX sýning nýrra uppfinninga er árlega í Pittsburgh. Hún er stærst sinnar tegundar í heiminum og opin fyrir uppfinningamenn, framleiðendur, dreifingaraðila og fjárfesta.