„Við eigum aldrei að sætta okkur við óútskýrðan kynbundinn launamun eða annað kynbundið misrétti og það er okkar verkefni að uppræta slíkt þar sem það þrífst“, segir Páll Matthíasson í forstjórapistli og greinir frá því að ákveðið hafi verið að efla nýja jafnréttisnefnd verulega með stuðningi við gagnaöflun og úrvinnslu. „Til að árangur náist er ljóst að við stjórnendur á Landspítala þurfum öll sem eitt að líta í eigin barm og huga að ábyrgð okkar þegar við ráðum í stöður og tökum aðrar ákvarðanir sem tengjast starfsmönnum. “
Í forstjórapistlinum er einnig fjallað um nýjan upplýsingavef Landspítala sem opnaður var í vikunni.