Nemendur í meistaranámi við viðskiptafræðideild HÍ í hópnum Góðverk stóðu að fjáröflun veturinn 2013-2014 í tengslum við námskeiðið Samvinna og árangur.
Hópurinn kom færandi hendi í febrúar og gaf til deilda Barnaspítala Hringsins ýmis tæki og búnað að undangengu samráði og tillögum frá starfsfólki.
Nemendunum voru færðar bestu þakkir fyrir frábært framtak og stuðning við Barnaspítala Hringsins.

- Bráðamóttaka barna endurnýjaði ísskáp og örbylgjuofn á kaffistofu starfsfólks.
- Leikstofa barna fékk tvo sjónvarpsskjái.
- Vökudeildin endurnýjaði í foreldraherbergi ýmis tæki s.s. púðakaffivél, brauðrist, heilsugrill, hraðsuðukönnu, sjónvarpsskjá og tölvu.
- Nemendurnir gáfu til viðbótar framangreindu Blue Ray spilara og útvarpstæki með geislaspilara.