Á geðsviði er nú starfræktur svokallaður Bataskóli. Midori kemur í Bataskólann og kennir eitt og annað um tónlist sem hún tengir við óviðjafnanlega tónlistarupplifun.
Midori hóf 30 ára tónlistarferill sinn ung að árum og er nú á meðal kunnustu tónlistarmanna heims. Auk þess hefur hún mikla reynslu af kennslu og miðlun tónlistar. Þetta námskeið ætti því að hæfa öllum.
Ásamt því að vera tónlistarmaður ávann Midori sér BA gráðu í sál- og kynjafræði frá New York University og síðar meistaragráðu. Hún hlaut heiðursdoktorsnafnbót frá Yale háskóla árið 2012 og er í bandarísku lista- og vísindaakademíunni.
Bataskólinn hvetur notendur og starfsfólk geðsviðs til að nota þetta einstaka tækifæri og mæta á námskeiðið.
ATH! Þetta er opinn viðburður. Það þarf ekki að gera boð á undan sér, bara mæta.
Midori leikur Menelssohn á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands 6. og 7. mars 2014