„Hjúkrun í fararbroddi“ er yfirskrift ráðstefnu Rannsóknastofnunar Háskóla Íslands og Landspítala í hjúkrunarfræði þann 15. janúar 2014.
Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Guðrúnu Marteinsdóttur sem var dósent í námsbraut í hjúkrunarfræði og ein af fyrstu fastráðnu kennurunum.
Guðrún var í doktorsnámi við Háskólann í Rhode Island þar sem hún vann að rannsókn um áhugahvöt meðal kvenna til líkamsþjálfunar og var langt komin með það verk þegar hún lést árið 1994.
Herdís Sveinsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, verður með megin erindi á ráðstefnunni sem ber heitið "Góðar og blessaðar tíðir": Um blæðingar kvenna og önnur kvennamál.
Útdrættir fyrir erindi, veggspjöld og vinnusmiðjur skulu vera að hámarki 250 orð og skal skipta efninu niður í: Inngang, aðferð, niðurstöður/meginmál og ályktanir. Útdráttum skal skilað eigi síðar en 15. desember 2013 á netfangið margbjo@hi.is. Reiknað er með að hvert erindi taki 15 mínútur og þar af eru 5 mínútur í umræður.
Staður og stund: Eirbergi, Landspítala Hringbraut kl. 9:00