Karl Andersen hefur verið settur yfirlæknir Hjartagáttar á Landspítala til 1. maí 2014 meðan Davíð O. Arnar gegnir stöðu framkvæmdastjóra lyflækningasviðs.
Karl hefur starfað lengi við Landspítala. Hann lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands og var við sérfræðinám í lyflækningum og hjartasjúkdómum við Östra/Sahlgrenska sjúkrahúsíð í Gautaborg í Svíþjóð. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Gautaborg. Karl er prófessor í hjartalækningum við læknadeild Háskóla Íslands og hefur verið mjög virkur í störfum Evrópusamstaka hjartalækna, sér í lagi á svið forvarna gegn hjarta og æðasjúkdómum.