Rúmlega 160 grunnskólanemendur og kennarar úr 13 grunnskólum mættu á kynningu um Landspítala sem mannauðsdeild spítalans stóð fyrir í Hringsal miðvikudaginn 6. nóvember 2013.
Landspítali býður nemendum í 10. bekk reglulega á stutta kynningu um starfsemi spítalans og starf nokkurra starfstétta og menntunarleiðir þeirra. Slíkar kynningar eru fyrir þá nemendur sem hafa sýnt áhuga á störfum í heilbrigðisgeiranum. Hver skóli kannar áhugann hjá sér og fær úthlutað tilteknum gestafjölda á kynninguna. Kennarar fylgja ef fleiri en 6 nemendur er í hópnum.
Á kynningunni 6. nóvember fjallaði Þórleif Drífa Jónsdóttir (drifa@landspitali.is), verkefnastjóri á mannauðsdeild, almennt um spítalann en hún hefur umsjón með þessum grunnskólakynningum. Í kjölfarið sögðu nokkrir starfsmenn spítalans frá námi og starfi sinnar fagstéttar.Lífeindafræðingar: Þórunn S. Björnsdóttir lífendafræðingur á rannsóknarsviði
Sjúkraliði: Guðveig Bjarný Guðmundsdóttir, sjúkraliði á lyflækningasviði
Hjúkrunarfræðingur: Lilja Ásgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur á skurðlækningasviði
Sjúkraþjálfari: Fríða Þórisdóttir, sjúkraþjálfari á lyflækningasviði
Læknir: Þórður Þórkelsson, yfirlæknir á kvenna- og barnasviði