Gefnar hafa verið út klínískar leiðbeiningar um hjúkrun sjúklinga eftir heilablóðfall. Þær eru þýðing á þremur köflum úr hjúkrunarleiðbeiningum sem voru samvinnuverkefni íslenskra og hollenskra hjúkrunarfræðinga frá endurhæfingar- og taugalækningadeild Landspítala, taugalækningasviði háskólasjúkrahússins í Utrecht í Hollandi og frá háskólanum þar. Kaflarnir þrír tengjast endurhæfingu og snúa að hreyfi- og sjálfsbjargargetu, einkenni þunglyndis og fræðslu til sjúklinga og aðstandenda þeirra.
Leiðbeiningarnar eru ætlaðar hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem starfa að endurhæfingu sjúklinga eftir heilablóðfall.
Leiðbeiningarnar eru ætlaðar hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem starfa að endurhæfingu sjúklinga eftir heilablóðfall.