Kennsluviðurkenningar læknakandídata á Landspítala 2012 voru veittar 6. desember, í sjötta sinn, eftir tilnefningar frá þeim sjálfum.
- Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi klíníska kennslu í daglegu starfi á deildum og á vöktum.
- Már Kristjánsson yfirlæknir tók við viðurkenningu fyrir hönd smitsjúkdómadeildar A7 á Landspítala. Deildin hlaut viðurkenningu fyrir að skara fram úr í kennslu kandídata. Var þetta í annað sinn sem slík viðurkenning er veitt.
Viðurkenningarnar voru veittar á jólaskemmtun kandídata sem haldin er árlega í byrjun desember og var þá tekin hópmynd af þeim. Jóhannes Kristjánsson, skemmtikraftur og hjartaþegi, kom í heimsókn og spjallaði á léttu nótunum. Boðið var upp á heitt súkkulaði og jólabakkelsi.