Ýmsar skipulagsbreytingar hafa verið gerðar að undanförnu á sjúkrahúsapóteki Landspítala. Jafnramt er lokið endurbótum á húsnæði þess bæði í Fossvogi og við Hringbraut. Apótekið færðist til bráðasviðs við breytingar á skipuriti Landspítala þann 1. júní 2012. Helena Líndal tók við starfi yfirlyfjafræðings þann 15. september 2011 til eins árs og skerpt var á innra skipulagi apóteksins:
- Starfseiningarnar eru nú fjórar - afgreiðsluapótek, klínísk þjónusta lyfjafræðinga og lyfjaskömmtun, almenn afgreiðsla og framleiðslueining. Hópstjórar starfseininga hafa verið skipaðir til eins árs.
- Afgreiðsla lyfseðla var flutt úr Fossvogi yfir í afgreiðsluapótekið við Hringbraut svo og lyfjalager og öll lyfjaafgreiðsla fyrir deildir spítalans. Klíníska lyfjafræðingateymið, miðstöð lyfjaupplýsinga og lyfjaskömmtun í lyfjaskúffur voru flutt frá Hringbraut og sameinaðar starfseminni í Fossvogi. Þannig hefur orðið mikil hagræðing í rekstri.
- Innleiðing á nýju tölvukerfi hefur verið í farvatninu um nokkurt skeið. Ætlunin er að innleiða Oracle vörustýringarkerfi, þ.e birgðar- og pöntunarkerfi, í lok mars 2012. Kerfið bíður upp á rafræna reikninga frá birgjum svo og handtölvur sem skanna lyfjapantanir. Það auðveldar og einfaldar alla afgreiðslu.
- Farið var í miklar breytingar á húsnæði apóteksins. Endurbætt húsnæði var formlega tekið í notkun 3. apríl 2012.
Ljósmyndir: Húsnæði sjúkrahúsapóteks komið í notkun eftir endurbætur. Á efri mynd eru Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri bráðasviðs, Helena Líndal yfirlyfjafræðingur, Kristín Ingvarsdóttir, lyfjafræðingur og hópstjóri grunnstarfsemi og Eva Ágústsdóttir, lyfjafræðingur og hópstjóri afgreiðsluapóteks.