Afhentir verða 10 styrkir úr Vísindasjóði LSH til ungra vísindamanna á spítalanum við athöfn í Hringsal á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 20. desember 2011, kl. 12:00 til 13:00. Markmið styrkjanna er að efla klínískar rannsóknir á Landspítala og styðja rannsóknarvirkni ungra starfsmanna.
Dagskrá
Opnun
Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri vísinda-, mennta- og nýsköpunarsviðs
Um styrki til ungra vísindamanna
Rósa Björk Barkardóttir, starfandi formaður vísindaráðs LSH
Afhending styrkja
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala
Styrkhafarnir tíu kynna rannsóknir sínar
Léttar veitingar eftir athöfnina
Allir velkomnir!