Ný skýrsla erlendra sérfræðinga staðfestir fyrri niðurstöður um hagræðingu af sameiningu á starfsemi á Landspítala í nýbyggingum við Hringbraut. Árleg hagræðing er talin nema um 3 milljörðum króna.
Björn Zoëga forstjóri fjallar um skýrsluna í föstudagspistli sínum:
"Við erum á réttri braut og þurfum að halda áfram að starfa að þessu mikilvæga verkefni."