Um síðustu áramót var öll starfsemi endurhæfingar- og hæfingardeildar Landspítala Kópavogi flutt til Kópavogsbæjar. Húsnæðinu var lokað. Töluvert var til af listaverkum á þessari deild. Verkin eru frá árunum 1972 til 1992 og mörg keypt fyrir framlag úr Listskreytingarsjóði ríkisins eða eru gjafir frá listamönnunum eða stofnunum við ýmis tækifæri, t.d. afmæli deildarinnar.
Verkin eiga það sameiginlegt að vera eftir framsækna íslenska listamenn.
Listamuna- og minjanefnd ákvað að sýna listaverkin í K-byggingu í sumar áður en endanleg staðsetning þeirra verður ákveðin.
Á sýningunni eru verk eftir listamennina ...
Georg Guðna Hauksson (1961-2011)
Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur (1953-1991)
Hallstein Sigurðsson, f. 1945
Helga Þorgils Friðjónsson, f. 1953
Jón Axel Björnsson, f. 1956
Sigrúnu Guðmundsdóttur, f. 1942
Sigurð Örlygsson, f. 1946
Sverri Ólafsson, f. 1948.
Merkingar eru við öll verkin þar sem nánari upplýsingar koma fram.
Listmuna- og minjanefnd Landspítala vonast til að þetta framtak mælist vel fyrir og verði til fróðleiks og ánægju fyrir gesti og gangandi í anddyri K-byggingar.