Surtsey – þörungar – mosar – fléttur er yfirskrift sumarsýningar sem Þórunn Bára Björnsdóttir listmálari hefur opnað á 3. og 4. hæð á Landakoti.
"Ég horfi á þróun lífs í Surtsey og velti fyrir mér hugtökunum aðlögun, nánd og samvinnu og hlut þeirra í mótun lífs. Ég skynja hliðstæður í eigin lífi.
Fyrstu plöntur á jörðu eiga ættir að rekja til þörunga sem lifðu í fersku vatni fyrir 400 milljónum ára. Þörungar og fléttur skipta gjarnan með sér verkum til að eiga sem besta lífsmöguleika. Fyrstu landnemar í Surtsey voru blágrænir þörungar sem gátu nýtt sér raka við gufuopin ásamt sólarorku sér til viðurværis. Aðrir þörungar, mosar og fléttur bárust síðar um haf með vindi. Mosar bjuggu um sig í öskulaginu en fléttur náðu festu í hrjóstrugu hrauninu. Þessar litlu plöntur undirbjuggu jarðveginn fyrir vatnsdrægar plöntur sem komu í kjölfarið."